Sælar elskurnar mínar - og þið sem eruð ekki elskurnar mínar!
Það er aldeilis nóg búið að vera að gera hjá mér í sumar þannig að það er frá nógu að segja - en vandamálið er að ég nenni ekki að segja frá því

Búið er að ganga á ýmsu og það er aðallega af því skemmtilega, en auðvitað slæðist inn á milli eitthvað sem er ekki eins skemmtilegt en það er þó enn í minnihluta.
Fór á Vopna um Vopnafjarðardaga og þar var rosalega skemmtilegt - ekki mikið að gera en þó alveg nóg. Fór t.d. á hestbak sem var alveg yndislegt, keppti í strandfótbolta og liðið mitt ,,Lu-Drull" endaði í 2. sæti, knúsaði frændsystkin mín endalaust, var boðið í afmæli, drakk föstudag og laugardag, hitti ömmurnar mínar, hitti Steina og Óbó og bara endalaus gleði.
Ég og Berglind búum enn saman og gæti ekki gengið betur hjá okkur, nema það að nú er karlmaður kominn í spilið á hægri kanntinum þannig að hann hefur fengið að gista í vinnuherberginu bara, skilst að þau parið spili svo vist á kvöldin, en mér er sóssum boðið að vera með í því, það er ágætt

Nú er ég að bulla....
Ég er ekki komin með kall en held leitinni áfram, vitiði hvar maðurinn er sem er ætlaður mér?

Ég hef ekki fundið hann, kannski er hann ekki fæddur enn....

Fór í útilegu á Selfoss um daginn með elskunni minni og frú - Berglindi Ósk Bárðardóttur - og það var náttla bara gaman eins og okkur einum er lagið. Ætluðum í lítinn göngutúr í dúnúlpunum okkar um kvöldið en enduðum sveittar á dansgólfi 800 bar fram á nótt. Bara snilld

Boot Campið klárast í byrjun sept en er byrjuð í Hokký þannig að ég er að missa mig í gleðinni og sportinu! Elska báðar þessar íþróttir!!!!!! Fótbolti - hvað er það nú eiginlega??

Eitt er samt ekki gott - hitti Þórey mína sama og ekki neitt......

Engum að kenna sóssum - bara mikið að gera frá báðum áttum - er það ekki elskan?
Nú er ég búin að fá nóg af því að blogga, fór á Boot Camp æfingu klukkan fimm í dag og svo á Hokký æfingu klukkan átta þannig að ég er sveitt núna og er að spá í að skella mér í sturtu!

Hér koma einhverjar myndir sem ég tók af speisinu mínu:
Gamla kjellan að pósa fyrir frægan ljósmyndara á Íslandi - ekki gefið upp hvað hann heitir en þið sjáið það augljóslega að þetta er pro mynd, er það ekki?


Ein eldri og heldri! Því að hún er af mér og stubbnum mínum sem ég eyði rosa miklum tíma með og þykir það endalaust gaman! Búin að vera frábær sambýlingur!




Hér erum við komnar í annan pakka - þegar drukkið er í Vesturberginu er ekkert verið að taka létt á því.... Ingibjörg stuðbolti og Elva fáviti að stíga á stokk eins og þeim einum er lagið.... þær tóku samt ekki lagið - þökkum fyrir það (Allavega hefði ég ekki boðið í það að einhver hefði heyrt mig syngja) hehe... en haldarinn á að vera svona - til að fyrirbyggja allan misskilning.... maður fær svo í hálsinn á því að hafa hann yfir hálsinn að á meðan við vorum heima var gellunum bara sleppt lausum.....hehehe.......

Berglind hékk upp í lofti þannig að það var ekki skrítið að ég hafi litið upp í loft og sett upp þennan skelfda svip.... hún komst þó heil niður.... allavega líkamlega...


Þetta voru afleiðingar landsmóts 2008 - áhættuatriði í fótbolta - endaði ekki vel..... en var sóssum ekki lengi að lagast! Mjög gaman á landsmóti og ég klárlega aftur þangað þegar það verður haldið á Vindheimamelum 2010! Þú kemur með!

Þetta er nýja tattoo-ið mitt, hvernig lýst þér á það?

Svo er gamla hérna - með klippinguna stuttu...... og NIKITA jakkan sem mútta og pápi gáfu mér í afmælisgjöf! Og í jakkanum kveð ég í bili!
You better kvitt or I´ll be like a tiger!
Íslandssól!